01janúar

2008

Gleðilegt Nýtt Ár Og Takk Fyrir Það Gamla.

Jæja jæja þá er árið bara á enda og er þá ekki málið að kíkja aðeins yfir það sem stóð hæst.

Fyrst er að nefna að við Biggi skelltum okkur til borg álanna um páskanna að heimsækja stóru systir og allt hennar stóð. Þetta var frábær ferð í alla staði þrátt fyrir einhvern slappleiki og þvílíkan kulda, hef bara ekki kynnst öðru eins enda var ákvörðun tekin um það að næsta ferð verður farin að sumri til.
Eftir ferðin til danaveldis þurfti ég að taka mig á í náminu til að geta klárað þau verkefni sem þurfti að klára ef ég ætlaði að geta útskrifast úr líffræðinni. Það hafðist ritgerðinni skilað inn á síðustu stundu og haldið var partý ársins held ég bara og var litla íbúðin í Flétturimanum full að fólki sem var í massa stuði. Fékk fullt af góðum gjöfum og ætli sú eftirminnilegast sé ekki  Svamp Sveinssonar gasblaðran, hún vakti alla vega lukku í partýinu.

Að námi loknu var komið að því að finna sér aðra vinnu, jebb eftir að hafa unnið hjá póstinum í gegnum framhaldskólann og háskóla var kominn tími til að breyta til. Fyrir valinu varð Tilraunastöðin að Keldum þar sem ég fékk frábæra vinnu á mjög góðum vinnustað og er ég ekki að sjá fram á það að hætta þar í bráð.

Sumarið var gott og kom álafólkið í heimsókn sem var frábært og var hápunktarnir grill, spil og hvítvín.

Svo þar sem ég ákvað að taka mér pásu frá frekara námi ákváðum við Biggi að setja íbúðina okkar á sölu í ágúst, bara svona til að prófa hvort eitthvað myndi gerast. Það gekk nú líka svona vel að í endaðan september vorum við flutt inn í nýja og stærri íbúð. Skrifuðum undir bara kortéri fyrir hrun landsins þannig að við sluppum fyrir horn sem betur fer. Þannig að restin af árinu fór í að mála, leggja parket, taka upp úr kössum.

01. janúar 2009 klukkan 17:02
Kristín Matt
4 athugasemdir
01nóvember

Vá bara allt að gerast

Jæja það var eitthvað verið að rukka mann um að blogga eitthvað, hef bara einhvern vegin ekki fengið andann  til þess en ætla að reyna að henda einn einhverjum línum.
Við erum núna flutt í risa íbúðina (alla vega að okkar mati) og erum að vinna að því að koma okkur fyrir sem gengur bara ágætlega, búin að mála, leggja parket og koma svona helsta dótinu fyrir (lesist sjónvarp og sófi). Flutningarnir sjálfir voru mikið stuð, græjukallinn hann faðir minn fékk einhvern félaga sinn til að koma á kranabíl og hífa alla búslóðina okkar uppá þriðju hæð á eurobretti. Viðurkenni að maður fékk svona nett í magann við það að sjá allt dótið sitt svífa upp á litlu bretti og það minnkaði ekki stressið þegar krana gaurinn sagði: "Ég vona bara að það komi ekki vindur þá hrinur allt í jörðina". En sem betur fer komst allt heilt á leiðarenda og það fór sko ekki fram hjá nágrönnunum að við værum að flytja inn.
Ekki mikið annað búið að vera gerast síðustu vikurnar nema stúss í kringum flutninga, vinna og svo einstaka djamm inn á milli, svona eins og þrjú afmæli og ein útskrift.
Vá hvað mér dettur ekkert skemmtilegt í hug að skrifa svo ég hendi bara inn einu lagi sem er gott til að koma mann í stuð ef maður er ekki að nenna neinu.




Kveðja Kristín sem er gjörsamlega tóm í hausnum. Kannski fór það litla sem eftir var af hugmyndafluginu með seinasta endajaxlinum í dag.

01. nóvember 2008 klukkan 01:27
Kristín Matt
6 athugasemdir
14september

klukk pjukk

Jæja ætla að vera með í þessari vitleysu

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Unglingavinnan
Bréfberi hjá póstinum
Fyrirtækjapósthús
Tilraunastöðin á Keldum

Fjórar kvikmyndir sem ég held upp á:
Sódóma Reykjavík
Desperado
Snatch
So I married an axe muderer

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Efra Breiðholt
Neðra Breiðholt
Esbjerg ( 4 mánuði)
Grafarvogur

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Fligth of the concords
Greys anatomy
24
Friends

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Mallorcal
Thailand
London
Aalborg

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
Facebook.com
Hi.is
mbl.is
visir.is

Fernt sem ég held upp á matakyns:
Nautakjöt
Allur grillaður matur
Hamborgari
Brauðsúpan hans pabba

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
Á sólarströnd með göróttan dryk í hönd
Á góðum tónleikum einhvers staðar úti í heim
Í skemmtigarði í Álaborg
Í nýju íbúðinni sem væri búið að mála og parketleggja
Fjórar bækur sem ég les oft
Þar sem ég les ekki bækur oft þá ætla ég að setja inn þær bækur sem ég last seinast
Kleifarvatn
Food microbiology
Röddin
Immunobiology

Þeir sem nenna geta gert þetta á síðunni sinni ég nenni ekki að finna neinn til að klukka sem er ekki búið að klukka nú þegar, nema þá kanski Elínu
14. september 2008 klukkan 13:36
Kristín Matt
5 athugasemdir
11september

Alltof mikið að gerast

Vá ég er klárlega ekki að standa mig í blogginu þessa dagana. Það er margt búið að gerast síðan að seinasta færsla var skrifuð. Fyrir það fyrsta þá er sumarið bara búið og maður spáiir alltaf í því hvert það fór eiginlega. Ég er bara komin í fasta vinnu á Keldum og er að fíla það í botn að vera ekki í skóla. Það er bara eitthvað svo notalegt að koma heim og þurfa ekkert að læraog sleppa við  að vera með samviskubit yfir því að maður sé ekki að læra.
Guðný og allt hennar stóð kom í heimsókn í sumar og það var geggjað gaman að fá þau heim en þegar þau voru farin af landi brott þá uppgötvar maður alltaf hvað það vantar mikið þegar þau eru ekki á landinu.
Svo er það nú stærsta fréttina af öllum, við erum að flytja úr litlu holunni okkar í helmingi stærri íbúð. Okkur Bigga datt í hug að það selja íbúðina okkar og flytja í eitthvað aðeins stærra þar sem að við hefðum nú kanski pláss fyrir eldhús borð og værum með þvottahús. Settum íbúðina okkar í sölu og viti menn innan mánaðar vorum við bæði búin að selja og kaupa. Allt gerðist frekar hratt (vill einhvern vegin vera þannig í kringum mig) og fáum við afhent eftir einhverjar tvær vikur. Þannig að nú er ég búin að missa mig í að pakka þannig að íbúðin er orðin ansi tómleg, en kettirnir eru að fíla það að fá fullt af pappakössum til að sofa á.
Hef ekkert meira að segja í bili skrifa örugglega ekkert blogg fyrr en í nýju íbúðinni

Kv Kristín með strax veikina
11. september 2008 klukkan 11:04
Kristín Matt
2 athugasemdir
23júní

Útskrift og vinna

Ætli sé ekki kominn tími á að maður hendi inn einhverjum línum. Lífið gengur bara sinn vana gang eftir að skólanum lauk bara vinna og njóta sumarsins. Útskriftin var frábær og hefði dagurinn vara geta verið betri. Dagurinn hófst með magnaðri útskriftarathöfn í Laugardalshöllinni sem var nú bara allt í lagi framan eða allt þar til kom að ræðu rektors sem var drep. Eftir athöfnina og hópmynd var byrjað í kökuboði í geislanum og svo massa partý í rimanum. Mikið stuð í partýinu og bjórinn flæddi. En það vantaði þó nokkrar lykilmanneskjur sem eru eitthvað að aulast í baunaveldi.
Vinna er líka ölla komast í fastar skorður og er ég eiginlega út um allt bara innan stofnunarinnar sem er ekki slæmt en mikið að læra (sumt ekkert alltof flókið þó). Eins og er verð ég líklegast í þrjár vikur að hugsa um mýsnar á rotturnar, passa að það sé hreint hjá þeim, gefa þeim að éta og aðstoða við rannsóknir á þeim. Semsagt nóg að gera en það er bara gaman.
23. júní 2008 klukkan 11:59
Kristín Matt
3 athugasemdir
27maí

Hjúkk

Jibbí fékk útúr öllum prófunum mínum í gær og gekk bara svona glimrandi vel. Get því farið að titla mig líffræðing í símaskránni Glottandi
Skelli hérna inn mynd af líffræðingi að störfum á Keldum
27. maí 2008 klukkan 21:05
Kristín Matt
5 athugasemdir
19maí

B.Sc

Þá er það úr mínum höndum og undir kennurunum komið hvort að B.Sc gráðan í líffræði er mín. Var að skila af mér ritgerðinni fyrir 5 eininga verkefnið mitt og er með nettan kvíðahnút í maganum yfir því. En ég get svo sem ekkert gert nema bíða.
Byrjaði í nýju vinnunni í seinustu viku og hófst fyrsti vinnudagurinn á því að fara út í hest- og fjárhús í blóðtöku. Það gekk vel fyrir utan það að við þurfum að hand hrista kindablóðið og mér tóks ekki betur til en að skvetta smá blóði framan í mig. En annars er fínt að vera að vinna þarn, heimilsleg stemming og ekki skemmir fyrir að vera búin kl 16:00 á daginn. Hef reyndar ekki alveg fundið fyrir því þar sem að allir daga eftir vinnu fóru í ritgerðarskrif.

19. maí 2008 klukkan 00:56
Kristín Matt
7 athugasemdir
08maí

25 ára og próflok

Náði að klára prófin fyrir afmæið mitt þannig að ég þurfti ekki að spá í því í gær og því gat maður legið í leti með nokkuð góða samvisku. Það eina sem ég á eftir að gera núna svo ég geti útskrifast er að skrifa eins og eina BSc ritgerð (sem ég er að byrja á í dag) en það er bara gaman að því.
Ég náði semsagt þeim ógurlega aldri að vera orðinn 25 ára í gær. Dagurinn var með besta móti, legið leti eftir próftörnina og spilað PS3. Ég á nefninlega svo góðan kærasta og tengda fjöldskyldu sem gáfu mér í afmælis og útskriftargjöf Playstation 3 tölvu og leiki þannig að þetta var eðall. Síðan fórum við Biggi um kvöldið út að borða á Caruso sem var mjög gott, nett óþægilegt samt að ég fékk ekkert að vita hvert við værum að fara heldur settist bara upp í bíl og svo keyrðum við þangað, en samt alltaf gaman að láta koma sér á óvart. Þannig að dagurinn var frábær í alla staðai fyrir svona tölvunörd eins og mig.
Þannig að nú tekur bara við ritgerðarskrif, ný vinna á þriðjudaginn og svo eru allar helgar bókaðar fram í miðjan júní þannig að það er nóg að gera eins og alltaf á sumrin.
Ætla að láta þetta duga í bili og fara að gera þessa ritgerð svo ég nái að vera búin með mikið af henni áður en ég byrja í nýju vinnunni á þriðjudaginn
08. maí 2008 klukkan 09:20
Kristín Matt
3 athugasemdir
17apríl

Loksins loksins

Ég er loksins búin með öll verkefni og að halda alla fyrirlestra þessa önnina. Nú á ég „bara“ eftir prófalestur og að reyna skrifa þessa blessuðu ritgerð fyrir þetta verkefni mitt. Veit ekki alveg hvernig ég á að fara að því að klára hana fyrir miðjan maí. Er rétt svo byrjuð á því að vinna úr niðurstöðunum úr tilraununum og er með einhvern slatta af heimildum sem ég þarf að lesa. En ég skal klára þetta svo að ég nái nú að útskrifast og halda gott partý í sumar.

Annars er ekkert merkilegt að frétta bara skóli og sofa. Fór reyndar í partý í sveitinni hjá siggu um seinustu helgi og það var geðveikt stuð. Það helsta sem mætti nefna er:

·        Grill

·        Baccardi Razz

·        Bjór

·        Partý og Co (sem by the way mitt lið vann)

·        Gítar

·        Drykkjuleikur

·        Tannstöngla póker

 

Þakka bara fyrir gott partý og hlakka til að endurtaka þetta við tækifæri

Jæja ætlað að fara að gera eitthvað af viti áður en ég fer að vinna

17. apríl 2008 klukkan 13:55
Kristín Matt
7 athugasemdir
08apríl

piff

Ojojoj hvað það er leiðinlegt að búa til fyrirlestur. Ég er semsagt að fara flytja fyrirlestur á morgun  og hélt einn í gær og á svo að halda annan í næstu viku og það er svo leiðinlegt að búa til svona fyrirlestur. Mér finnst minna mál að halda hann því það tekur svo stuttan tíma (samt er maður alltaf nett stressaður) en að setja hann saman er algjör dauði.

Fór á keilumót póstsins um helgina og það var bara ágætt, komst reyndar að því að það er ekkert sérstaklega skemmtilegt að spila keilu edrú. Sleppti því semsagt að drekka út af fyrirlestrarsmíðum (svik dauðans).

Annars er ekkert merkilegt að frétta, bara verkefni á verkefni ofan og það styttist óðum í prófin.

08. apríl 2008 klukkan 15:21
Kristín Matt
4 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Kristín Matt
  • Atvinna: Starfsmaður á Tilraunastöðinni á Keldum

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Veðrið í Tælandi

The WeatherPixie

Atburðateljari