Alltof mikið að gerast

Vá ég er klárlega ekki að standa mig í blogginu þessa dagana. Það er margt búið að gerast síðan að seinasta færsla var skrifuð. Fyrir það fyrsta þá er sumarið bara búið og maður spáiir alltaf í því hvert það fór eiginlega. Ég er bara komin í fasta vinnu á Keldum og er að fíla það í botn að vera ekki í skóla. Það er bara eitthvað svo notalegt að koma heim og þurfa ekkert að læraog sleppa við  að vera með samviskubit yfir því að maður sé ekki að læra.
Guðný og allt hennar stóð kom í heimsókn í sumar og það var geggjað gaman að fá þau heim en þegar þau voru farin af landi brott þá uppgötvar maður alltaf hvað það vantar mikið þegar þau eru ekki á landinu.
Svo er það nú stærsta fréttina af öllum, við erum að flytja úr litlu holunni okkar í helmingi stærri íbúð. Okkur Bigga datt í hug að það selja íbúðina okkar og flytja í eitthvað aðeins stærra þar sem að við hefðum nú kanski pláss fyrir eldhús borð og værum með þvottahús. Settum íbúðina okkar í sölu og viti menn innan mánaðar vorum við bæði búin að selja og kaupa. Allt gerðist frekar hratt (vill einhvern vegin vera þannig í kringum mig) og fáum við afhent eftir einhverjar tvær vikur. Þannig að nú er ég búin að missa mig í að pakka þannig að íbúðin er orðin ansi tómleg, en kettirnir eru að fíla það að fá fullt af pappakössum til að sofa á.
Hef ekkert meira að segja í bili skrifa örugglega ekkert blogg fyrr en í nýju íbúðinni

Kv Kristín með strax veikina
11. september 2008 klukkan 11:04
Kristín Matt
Brynja skrifar ...
Vá! bara allt að gerast!
Gangi ykkur vel að flytja :D
Hlakka til að sjá nyju íbúðina ;)
11. september 2008 klukkan 22:31
Guðný MatthíasdóttirÞað er hrikalega asnalegt að vera ekki hjá ykkur núna, langar að koma og hjálpa ykkur.
Það verður víst að bíða betri tíma, hlakka rosalega til að sjá nýju íbúðina.

Knús frá Áló
13. september 2008 klukkan 21:48

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Kristín Matt
  • Atvinna: Starfsmaður á Tilraunastöðinni á Keldum

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Veðrið í Tælandi

The WeatherPixie

Atburðateljari