Ég heiti Kristín og með mér á myndinni er kærastinn minn hann Biggi.
Við eigum kött sem að heitir Hneta og er fress

Ég er fædd 7.maí 1983 og er því í nautsmerkinu
![]()
Ég er alinn upp í hinu yndislega neðra Breiðholti
og gekk í Breiðholtsskóla alla mína grunnskólagöngu

En eftir að ég útskrifaðist úr honum lá leiðin í Menntaskólann við Hamrahlíð þar sem að stúdentinn var naumlega kláraður á fjórum árum

Eins og er þá er ég í Líffræði við Háskóla Íslands í náttúrufræðihúsinu

